Alþjóðleg vernd
Þú hefur sótt um alþjóðlega vernd
Afgreiðslutími umsókna um alþjóðlega vernd er mislangur eftir því hvernig málsmeðferð umsóknin þín fær.
Árið 2025 var meðalafgreiðslutími allra umsókna um alþjóðlega vernd 4,5 mánuðir.
Svarið við umsókn þinni um alþjóðlega vernd verður sent talsmanni þínum og ber honum að tilkynna þér niðurstöðuna.
Til að draga umsókn um alþjóðlega vernd til baka þarftu að hafa samband við Útlendingastofnun. Upplýsingar um nafn og fæðingardag þurfa að koma fram í erindinu.
Útlendingastofnun mælir með að þú bíðir með að kaupa þér flugmiða frá Íslandi þangað til þú hefur fengið ráðgjöf hjá sérfræðingum á verndarsviði.
Sem umsækjandi um alþjóðlega vernd munt þú fá boð í viðtal þar sem þú færð tækifæri til að leggja fram þau gögn sem geta haft þýðingu fyrir umsókn þína, í samráði við talsmann og fulltrúa Útlendingastofnunar.
Ef þú vilt leggja fram viðbótargögn eftir að viðtali þínu er lokið skaltu hafa samband við talsmann þinn.
Til að mega vinna á meðan umsókn þín um alþjóðlega vernd er í vinnslu verður þú að fá útgefið bráðabirgðadvalar- og atvinnuleyfi.
Slíkt leyfi er aðeins veitt tímabundið þar til endanleg niðurstaða liggur fyrir um umsókn þína um vernd. Leyfið veitir engin önnur réttindi.
Útlendingur, sem hefur fengið synjun á umsókn um alþjóðlega vernd eða dregið umsókn um vernd til baka, getur óskað eftir aðstoð við að snúa aftur heim.
Umsókn um aðstoð þarf að berast áður en frestur til heimfarar, sem tilgreindur er í ákvörðun stjórnvalda, rennur út.
Þú getur óskað eftir aðstoð við sjálfviljuga heimför með því að fylla út beiðni og senda á return@utl.is.