Ótímabundið dvalarleyfi
Þú hefur fengið ótímabundið dvalarleyfi
Ef myndin sem við eigum af þér er eldri en fjögurra ára getum við ekki notað hana til að panta nýtt kort. Þú verður þá látin/látinn vita að þú þurfir að mæta í myndatöku í afgreiðslu Útlendingastofnunar eða á skrifstofu sýslumannsembættis utan höfuðborgarsvæðis.
Það er nauðsynlegt að panta tíma í myndatöku hjá Útlendingastofnun. Mundu að taka með þér vegabréf til að sanna hver þú ert.
Handhafar ótímabundinna dvalarleyfa mega vinna á Íslandi án atvinnuleyfis. Þeim er heimilt að starfa hjá hvaða atvinnurekanda sem er eða starfa sjálfstætt kjósi þeir það.
Handhafar ótímabundinna dvalarleyfa mega dvelja erlendis í allt að 18 mánuði á fjögurra ára tímabili án þess að leyfið falli niður. Athugið að dvöl erlendis getur haft áhrif á umsókn um íslenskan ríkisborgararétt.
Útlendingastofnun tekur ákvörðun um hvort fella skuli niður ótímabundið dvalarleyfi þegar leyfishafi hefur dvalist erlendis lengur en 18 mánuði á fjögurra ára tímabili.
Þú getur óskað eftir að fá til baka frumrit og afrit gagna sem þú hefur lagt fram hjá Útlendingastofnun. Þú getur einnig óskað eftir því að fá afrit af gögnum sem tengjast máli þínu hjá stofnuninni gegn greiðslu.