Ótímabundið dvalarleyfi
Hér finnur þú gagnlegar upplýsingar ef umsókn þinni um ótímabundið dvalarleyfi hefur verið synjað.
Þér hefur verið synjað um ótímabundið leyfi
Hafi umsókn þinni um dvalarleyfi verið synjað færðu 15 daga frest til þess að kæra ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála. Kærufresturinn byrjar að líða þegar þú móttekur synjun Útlendingastofnunar.
Á vef kærunefndarinnar má finna upplýsingar og leiðbeiningar á síðunni Hvernig get ég kært.
Kærunefnd útlendingamála gerir ekki kröfur um ákveðið form kæru. Nauðsynlegt er þó að nafn og heimilisfang kæranda komi fram í kæru, sem og tölvupóstur og/eða sími, svo hægt sé að hafa samband við kæranda á meðan kærumálið er til meðferðar hjá nefndinni.
Kæruna má senda með tölvupósti á postur@knu.is eða í gegnum Signet transfer en ekki er þörf á að senda hana einnig bréfleiðis. Á heimasíðu nefndarinnar er einnig að finna kæruform.
Í það minnsta þarf að koma fram:
Fullt nafn kæranda.
Fæðingardagur.
Ríkisfang (og eftir atvikum viðtökuríki).
Tengsl aðila, ef kært er fyrir fjölskyldu.
Hvers konar ákvörðun verið er að kæra.
Þú getur óskað eftir að fá til baka frumrit og afrit gagna sem þú hefur lagt fram hjá Útlendingastofnun. Þú getur einnig óskað eftir því að fá afrit af gögnum sem tengjast máli þínu hjá stofnuninni gegn greiðslu.