Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Útlendingastofnun Forsíða
Útlendingastofnun Forsíða

Útlendingastofnun

Dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla fyrir handhafa mannúðarleyfis

Ef þú ert handhafi mannúðarleyfis sem var veitt á grundvelli 18 mánaða reglunnar og hefur fengið tengil á þessa síðu sendan í tölvupósti frá Útlendingastofnun þarftu að kynna þér upplýsingarnar hér að neðan vel.

Ekki er lengur heimilt að endurnýja mannúðarleyfi sem voru veitt á grundvelli 2. mgr. 74. gr. útlendingalaga (18 mánaða reglunnar). Ákvæðið var nýlega fellt úr lögum en það kvað á um heimild til að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef niðurstaða lá ekki fyrir í máli þeirra innan 18 mánaða. Í tilviki barna var miðað við 16 mánuði.

Handhafar mannúðarleyfa sem voru veitt á grundvelli þessa ákvæðis mega í staðinn sækja um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland.

Hvernig á að sækja um?

  • Þú sækir um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla með stafrænum hætti á netinu.

  • Nauðsynlegt er að vera með rafræn skilríki til að fylla út umsóknina. Vantar þig rafræn skilríki?

  • Ekki þarf að greiða afgreiðslugjald fyrir umsóknina.

Hvenær þarftu að sækja um?

  • Það er mikilvægt að þú sækir um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla áður en núverandi dvalarleyfi rennur út.

Hvaða skilyrði þarftu að uppfylla?

  • Þú þarft að geta sýnt fram á að framfærsla þín sé trygg þann tíma sem þú sækir um að dveljast á Íslandi. Trygg framfærsla þýðir að þú hafir næg fjárráð til að geta séð fyrir sér sjálf/sjálfur. Mánaðarleg lágmarksviðmið eru:

    • 247.572 krónur fyrir einstaklinga.

    • 396.115 krónur fyrir hjón.

    • 123.786 krónur til viðbótar vegna fjölskyldumeðlims 18 og eldri.

  • Þú mátt ekki eiga ólokin mál í refsivörslukerfinu þar sem grunur er um refsiverða háttsemi.

  • Þú mátt hvorki vera að afplána fangelsisrefsingu né bíða afplánunar.

Hvaða gögnum þarftu að skila með umsókninni?

  • Afriti af gildu vegabréfi frá heimaríki.

    • Senda þarf afrit af síðum með persónuupplýsingum og rithandarsýnishorni. Gildistími skal vera minnst 90 dagar umfram fyrirhugaðan gildistíma dvalarleyfis.

  • Gögnum sem staðfesta trygga framfærslu á dvalartíma. Hægt er að sýna fram á framfærslu með einum eða fleiri þáttum. Eftirfarandi er ekki tæmandi upptalning:

    • Dagsettur og undirritaður ráðningarsamningur.

    • Launaseðlar síðustu þriggja mánaða.

    • Greiðsluáætlun, ef þú ert að þiggja bætur líkt og atvinnuleysisbætur eða greiðslur frá Tryggingastofnun vegna örorku.

    • Staðfesting á greiðslum frá Tryggingastofnun eða Vinnumálastofnun.

    • Yfirlit úr staðgreiðsluskrá Skattsins.

Athugið að félagslegir styrkir frá ríki eða sveitarfélagi teljast ekki til tryggrar framfærslu.