Breytingar á lögum um útlendinga taka gildi
20. mars 2026
18 mánaða reglan felld niður, ekki lengur heimilt að endurnýja mannúðarleyfi veitt á grundvelli hennar og heimildir til að afturkalla alþjóðlega vernd vegna alvarlegra afbrota skýrðar.

Þann 6. mars síðastliðinn tóku gildi eftirfarandi breytingar á lögum um útlendinga sem Alþingi samþykkti 16. febrúar.
18 mánaða reglan felld niður
Með lagabreytingunni er svokölluð 18 mánaða regla felld niður. Reglan fól í sér heimild til að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef umsókn þeirra hafði ekki verið afgreidd endanlega á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða. Í tilviki barna var miðað við 16 mánuði.
Ekki lengur heimilt að endurnýja mannúðarleyfi á grundvelli 18 mánaða reglunnar
Niðurfelling 18 mánaða reglunnar felur í sér að ekki er lengur heimilt að endurnýja mannúðarleyfi sem veitt voru á grundvelli 2. mgr. 74. gr. útlendingalaga.
Handhafar slíkra leyfa geta þess í stað sótt um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla án greiðslu umsóknargjalds.
Skilyrði fyrir veitingu slíks leyfis eru meðal annars að umsækjandi:
geti framfleytt sér sjálfur,
eigi ekki ólokin mál í refsivörslukerfinu þar sem grunur er um refsiverða háttsemi, og
afpláni hvorki fangelsisrefsingu né bíði afplánunar.
Útlendingastofnun mun hafa samband við þá einstaklinga sem þetta á við um og veita þeim frekari leiðbeiningar.
Afturköllun alþjóðlegrar verndar vegna afbrota
Með lagabreytingunni er heimilað að afturkalla alþjóðlega vernd ef útlendingur fremur alvarlegt afbrot eftir að vernd hefur verið veitt.
Afturköllun getur átt við ef:
gildar ástæður eru til að telja útlending hættulegan öryggi ríkisins,
hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot og telst af þeim sökum hættulegur samfélaginu, eða
hann hefur verið dæmdur fyrir ítrekuð afbrot sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi.
Verði alþjóðleg vernd afturkölluð falla dvalarleyfi og atvinnuleyfi viðkomandi sjálfkrafa úr gildi.
Nýtt ákvæði um umborna dvöl
Við lögin hefur verið bætt nýju ákvæði sem heimilar veitingu tímabundins dvalarleyfis á grundvelli umborinnar dvalar. Heimilt er að veita leyfið þegar grundvallarreglan um bann við því að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu kemur í veg fyrir að unnt sé að vísa einstaklingi úr landi.
Slíkt leyfi getur verið bundið skilyrðum, til dæmis að viðkomandi:
tilkynni sig reglulega til lögreglu,
haldi sig á ákveðnum stað, eða
hafi ekki rétt til atvinnuleyfis.
Dvalarleyfi á grundvelli umborinnar dvalar getur ekki orðið grundvöllur fyrir ótímabundnu dvalarleyfi.