Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Merki TR

Merki TR er einkennandi fyrir stofnunina og vel þekkt. Það var upprunalega hannað af Tryggva Tryggvasyni hönnuði og var þá í öðrum litum. Í febrúar 2023 var nýtt merki kynnt og nýtt heildarútlit fyrir TR og var það auglýsingastofan Kontor sem hannaði það. Ekki var um að ræða algjöra endurhönnun á merkinu sjálfu en breytingin samt sem áður afgerandi og fersk.

Merki TR er notað við almenna kynningu á starfsemi stofnunarinnar.

Notkun á merkinu er öllum heimil með eftirfarandi skilyrðum:

  • Merki TR er notað á þann hátt sem það er sett fram hér á síðunni. Ekki má breyta letri, lit né taka það í sundur eða breyta uppsetningu.

  • Mikilvægt er að merkið fái nægt pláss í kringum sig. Gott er að miða við breidd sem jafnast á við laufin sitt hvorum megin við merkið og fyrir ofan og neðan.

Merki Tryggingastofnunar