Eftirlit
Eitt af hlutverkum TR er að standa vörð um velferðarkerfið. Stofnunin hefur því á að skipa eftirliti sem sannreynir réttmæti greiðslna.
Við eftirlit er farið yfir ýmsar persónulegar upplýsingar um umsækjanda eða greiðsluþega. Gagna er aðallega aflað frá umsækjanda sjálfum en TR sækir einnig upplýsingar til annarra aðila sem heimild er fyrir í lögum.
Réttindi til ýmissa greiðslna byggjast á búsetu á Íslandi. Þegar verið er að kanna búsetu eru ýmis gögn könnuð sem geta gefið vísbendingu um hvar viðkomandi aðili býr.
Ef skýring frá viðkomandi telst eðlileg er málinu lokið og ekkert er frekar aðhafst. Sjá lög um almannatryggingar nr. 100/2007, 38.gr., 43. gr. og 45. gr."
TR vinnur með persónuupplýsingar einstaklinga, hægt er að lesa nánar um það undir persónuvernd.