Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

12. desember 2025

Landsbankinn hf.

Málsnúmer: 2511177

Tegund gagna: Vinnugögn

Niðurstaða: Heimilað

Gögn sem beðið er um að fá að grisja:
Viðskiptavinaskjöl:
1. Umsókn um netbanka einstaklinga (hét einkabanki)
2. Kreditkortaumsóknir
3. Umsóknir um reikninga fyrir AH, SP, IG (hér eftir: stofnar)
4. Númera- og nafnaskrár, spjaldskrár stofna.


Grisjunarheimild: Landsbankinn hf. hefur heimild til að eyða umbeðnum skjölum.

Sýnishornataka: Númera- og nafnaskrár verða varðveittar í heild sinni ásamt einum bankakassa af öðrum tegundum skjala.

Forsenda ákvörðunarinnar: Forsenda ákvörðunarinnar er sú að skjölin hafa takmarkað gildi eftir að þjónusta bankans hefur verið stofnuð og notuð af viðskiptavini. Notkunin er svo sönnun þess að þjónustan hafi verið veitt. Veita ætti heimild til eyðingar þegar hagnýtu gildi er lokið með skilyrði um sýnishornatöku sem sýnir notkun og sögu skjalanna frá einu tímabili annars í starfsemi bankans.