2. maí 2024
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra
Málsnúmer: 2404062
Tegund gagna: Vinnugögn
Niðurstaða: Heimilað
Gögn sem beðið er um að fá að grisja:
Rannsóknarniðurstöður vatnssýna, matvælasýna og sjósýna
Grisjunarheimild:
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra hefur heimild til að grisja rannsóknarniðurstöður vatnssýna, matvælasýna og sjósýna.
Sýnishornataka:
Á ekki við.
Forsenda ákvörðunarinnar:
Forsenda ákvörðunarinnar er að niðurstöður úr sýnatökunum eru færðar inn í eftirlitsskýrslur sem eru varðveittar varanlega. Ekki þykir ástæða til að varðveita umbeðin afrit af sýnatökuskjölunum lengur en í tvö ár eins og lagt er til í beiðninni.