Tímabundnar tafir á afhendingu nýrra ökuskírteina
11. september 2026
Unnið er að því að skipta um birgja fyrir plastið sem notað er í framleiðslu ökuskírteina. Vegna þessa eru tímabundnar tafir á afhendingu nýrra plasta.

Af þeim sökum mun afhendingu ökuskírteinis sem hafa verið pöntuð seinkað. Á meðan verður framleiðslu ökuskírteina forgangsraðað eftir mikilvægi.
Starfsfólk sýslumanna vinnur nú hörðum höndum að því að lágmarka áhrif tafanna á einstaklinga. Unnið er að því leysa málið fljótt og væntingar eru um að hægt verði að afhenda nýja útgáfu ökuskírteina í nóvember.
Stafrænt ökuskírteini
Hægt er að nálgast stafrænt ökuskírteini í Ísland.is appinu. Sæktu appið í snjalltæki, skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum og veldu ökuskírteini undir „Skírteinin mín“. Stafræna ökuskírteinið verður aðgengilegt í appinu þegar umsókn hefur verið afgreidd.
Bráðabirgðaakstursheimild
Þeir sem þurfa staðfestingu á ökuréttindum meðan beðið er eftir plastökuskírteini geta fengið útprentaða bráðabirgðaakstursheimild hjá sýslumanni.
Athugið
Að stafrænt ökuskírteini og bráðabirgðaakstursheimild gildir aðeins á Íslandi og kemur því ekki í stað plastökuskírteinis á ferðalögum erlendis.