Fara beint í efnið
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

Fréttabréf júní 2023 #2

30. júní 2023

Stafrænt Ísland vinnur í sjö vikna lotum sem innihalda þrjá tveggja vikna spretti. Nú er komið frost fram yfir sumarfrí sem ætti að tryggja okkur og okkar fólki rólegt og uppákomulaust sumarfrí.

Að stofna fyrirtæki

Frost fram yfir sumarfrí

Titill þessa fréttabréfs er kannski það síðasta sem við óskum okkur almennt en ákveðinn léttir hjá teymum Stafræns Íslands. Frost fram yfir sumarfrí ætti að tryggja okkur og okkar fólki rólegt og uppákomulaust sumarfrí. 

Stafrænt Ísland vinnur nefnilega í sjö vikna lotum sem innihalda þrjár tveggja vikna spretti. Í lok hvers tveggja vikna spretts er útgáfa en þar stýrir útgáfustjóri útgáfu á uppfærslum og nýjum þjónustum stofnana og teyma eins og hljómsveitastjóri. Sjöunda vikan í lotunni er svokölluð millivika sem er hugsuð til þess að teymi gefi sér tíma í að fara yfir hvað gekk vel, hvað illa, hvað þarf að bæta og breyta áður en haldið er inn í næstu lotu. 

Frostið sem við erum komin í núna þýðir að það verði ekki útgáfa á tveggja vikna fresti yfir hásumarið og gefur andrými til að safna kröftum inn í næsta vetur.


Áhugaverð tölfræði:

  • 91% verðandi foreldra velja stafræna umsókn um fæðingarorlof

  • 95% ökukennarar nota stafrænt ökunámsferli

  • Spjallmennið Askur sá um 74% af heildarsamskiptum

  • 15 vefsíður stofnana hafa flutt á Ísland.is

  • 27 stofnanir vinna í að flytja vefsíður sínar á Ísland.is

  • Ísland.is fékk 495 þúsund heimsóknir í maí og 1,5 milljón flettingar

  • 86% sakavottorða stafræn það sem af er ári eða 6.915

  • 80% búsforræðisvottorða stafræn það sem af er árinu eða 670

  • 69% stafrænar umsóknir um ríkisborgararéttþað sem af er ári eða 302

  • 72% stafræn endurnýjun dvalarleyfis það sem af er ári eða 1209

  • 99,5% endurnýjun skotvopnaleyfis það sem af er ári eða 651

  • 91% stafræn skotvopnaleyfi það sem af er ári eða 456


Forskráning á Tengjum ríkið 

Ráðstefnan Tengjum ríkið verður haldin í 4.sinn þann 22.september. Forskráning er hafin en nú þegar hafa 250 manns skráð sig.

Skráning á Tengjum ríkið


AWS leitar ráða hjá Íslandi

Fræðsluteymi AWS er þessa dagana að taka viðtöl við nokkra af samstarfsaðilum Stafræns Íslands með það að markmiði að deila með umheiminum þeim árangri sem hefur náðst hér á landi í stafrænni umbreytingu.

AWS Institute


Starfatorg flutt á Ísland.is

Fyrsta útgáfa af Starfatorgi á Ísland.is er komin í loftið en sumarið verður nýtt til þess  að safna notendasögum til að byggja enn frekari endurbætur á.

Starfatorg á Ísland.is


Stafræn örorkuskírteini

Stafræn örorkuskírteini eru nú rétthöfum aðgengileg í Ísland.is appinu og á Mínum síðum Ísland.is.

Lesa frétt


Háskólanám á Ísland.is

Fyrsta skrefið í að koma upplýsingum um allt háskólanám sem er í boði á Íslandi var tekið á dögunum á Ísland.is.

Háskólanám á Ísland.is


Að vinna er nýr lífsviðburður á Ísland.is

Að vinna er nýr lífsviðburður á Ísland.is sem stiklað er á stóru í gegnum helstu atriði sem hafa ber í huga þegar haldið er út á vinnumarkaðinn.

Að vinna á Ísland.is


Ökukennarar stafrænir

Í maí var lokaskrefið í stafvæðingu ökunáms tekið með því að birta ökunámsbók ökunema með stafrænum hætti á Mínum síðum Ísland.is.

Lesa frétt


Skattþrepin á Ísland.is 

Ýmsar gagnlegar upplýsingar er að finna á Ísland.is - allt frá lífsviðburðum til sérstakra mála eins og ökunám og fæðingarorlof. Skatturinn hefur sett upp frábæra upplýsingasíðu sem útskýrir skattþrepin mjög vel og ætti að koma mörgum að góðu gagni.

Skattþrepin á Ísland.is


Meðal verkefna Stafræns Íslands eru:

  • Ákvörðun um skipti dánarbús

  • Eigendaskipti vinnuvéla og tækja

  • Endurnýjun einkamekis ökuréttindi

  • Endurnýjun ökuréttinda

  • Mínar síður: Fjármál, hreyfingar á tímabilinu

  • Mínar síður: Heilsugæsla og tannlæknar

  • Mínar síður: Hugverkaréttindin mín

  • Mínar síður: Námsyfirlit úr INNU

  • Mínar siður: Starfsleyfi heilbrigðisstarfsfólks

  • Mínar síður. Vélar og tæki

  • Rafræn erfðafjárskýrsla

  • Rafræn þinglýsing á kaupsamningum fasteigna

  • Samráðsgátt - uppfært notendaviðmót

  • Staðfesting stafrænna ökuskírteina hjá Vínbúðunum

  • Stafræn umsókn um fæðingarorlof: Varanlegt fóstur og dvalarstyrkur

  • Stafrænt veiðikort

  • Stafræn umsókn um vegabréf

  • Tilkynning um vinnuslys

  • Umsókn um dvalarleyfi

  • Umsókn um endurnýjun dvalarleyfa ítrun

  • Umsókn um ríkisborgararétt ítrun

  • Umsókn um sannvottun

  • Umsókn um ökuritakort

  • Vefur gæða- og efrilitsstofnunar velferðarmála

  • Vefur Samgöngustofu á Ísland.is

  • Vefur Tryggingastofnunar á Ísland.is