Efnisstefna
Efnisstefna Ísland.is
Ísland.is er þjónustu- og upplýsingavefur fyrir almenning. Efni sem birt er á Ísland.is á að hjálpa fólki að skilja réttindi sín og skyldur, taka ákvarðanir og klára erindi sem tengjast opinberri þjónustu.
Markmið efnisstefnunnar er að tryggja að allir sem koma að efnisvinnslu og viðhaldi efnis fyrir Ísland.is vinni í takt svo að hámarka megi gæði efnis og upplifun fyrir alla notendur. Slíkt einfaldar líf bæði notenda og þeirra sem veita þjónustuna.
Stefnan og handbókinni sem henni fylgir er fjalla um hvernig efni fyrir vefinn er unnið, birt, stýrt og haldið við. Þegar vísað er til vefsins er ekki aðeins átt við efni í leiðakerfi Ísland.is og vefi opinberra aðila heldur einnig verkefnavefi, sérvefi, þjónustuvefi stofnana, spjallmenni og umhverfi sem birtist notendum á Mínum síðum og í Umsóknakerfi.
Efnisstefna Ísland.is er nátengd annarri stefnumótun um stafræna þróun opinberrar þjónustu, þar á meðal aðgengis- og gæðastefnum Stafræns Íslands og stefnum um opinbera þjónustu. Efnisstefnan er í stöðugri þróun. Upplýsingum um breytingar á henni er miðlað hér á síðunni.
Grunnreglur á Ísland.is
Þarfir notenda eru í öndvegi
Við skrifum og skipuleggjum efni út frá því sem fólk þarf að gera eða afla sér upplýsinga um. Allt efni á Ísland.is á að svara skýrri notendaþörf. Ef ekki er ljóst hvernig eða hverjum efnið hjálpar á það ekki að fara í birtingu á Ísland.is. Lesa meira um notendaþarfir í handbók efnisstefnunnar.
Það mikilvægasta er fyrst
Notendur eiga að vita sem allra fyrst hvort þeir eru á réttum stað og hvað þeir eigi að gera næst.
Lesa meira um forgangsröðun efnis og dæmi um góða uppsetningu.
Við skrifum á mannamáli
Texti á að vera skýr og aðgengilegur öllum. Efnið á að leiða fólk áfram í þjónustuferli eða hjálpa fólki að taka ákvarðanir. Texti á Ísland.is á að vera á góðri íslensku og ensku, laus við villur í málfari og stafsetningu, greinarmerkjasetning á að vera skýr og frágangur efnis til fyrirmyndar.
Sjá nánar í umfjöllun um orðalag og aðgengisstefnu Ísland.is.
Við eflum traust á opinberri þjónustu
Fólk treystir upplýsingum sem það skilur strax og traust eykst þegar upplýsingar eru samræmdar milli stofnana og reglulega uppfærðar. Flókin framsetning, ósamræmi og úreltar eða rangar upplýsingar rýra vinnu okkar allra og geta valdið upplýsingaóreiðu.
Það er ekki nóg að birta
Birting efnis er bara byrjunin. Efni á vef er lifandi og það verður að mæla, uppfæra og ítra reglulega. Efni sem ekki er haldið við verður úrelt á endanum. Ísland.is er ekki skjalaskápur. Vefir opinberra aðila á Ísland.is eru sniðnir að þörfum notenda þjónustunnar, ekki starfsfólks eða verkefnum þeirra. Hlustum á endurgjöf, skoðum gögn og lærum af raunverulegri notkun svo vefurinn geti mætt þörfum sem þróast með tímanum. Lesa meira um útgáfuferla og grisjun efnis í handbók efnisstefnunnar.
Einfaldara er betra
Yddum texta.
Handbók efnisstefnunnar
Í handbók efnisstefnunnar eru leiðbeiningar um efnisvinnslu, textagerð og umsjón efnis á Ísland.is fyrir efnisvinnslufólk, vefteymi og vefstjóra.
Uppfærslur á efnisstefnu Ísland.is
Uppfærsla gerð 2026.
Heildarendurskoðun á efnisstefnu felur meðal annars í sér viðbætur um viðhald og grisjun efnis.
Síðast yfirfarið: 18. ágúst 2026
