Táknmálsrannsóknir
Íslenska táknmálið er eitt af táknmálum heimsins en táknmál eru ekki alþjóðleg heldur eru þau sjálfsprottin mál sem verða til í samskiptum döff fólks.
Íslenska táknmálið er eina hefðbundna minnihlutamálið sem á uppruna sinn á Íslandi og er annað tveggja lögvarinna tungumála hér á landi.
Um 300 manns líta á það sem sitt móðurmál en miklu fleiri nota þó íslenskt táknmál í daglegu lífi eins og fjölskyldur döff fólks, starfsfólk sem vinnur í táknmálssamfélaginu, vinir og vandamenn.