Þjónusta
Hlutverk stofnunarinnar er að vinna að rannsóknum á íslensku táknmáli, kennslu íslensks táknmáls og námsefnisgerð, túlkaþjónustu á milli íslensks táknmáls og íslensku og annarri þjónustu sem fellur undir starfssvið stofnunarinnar.
Gildi Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra eru: Frumkvæði - Virðing - Samvinna
Táknmálstúlkun
Fólk sem notar íslenskt táknmál til samskipta í daglegu lífi, eiga rétt á þjónustu táknmálstúlks í samskiptum við opinbera aðila.
Táknmálskennsla
Hver sem hefur þörf fyrir táknmál skal eiga þess kost að læra og nota íslenskt táknmál, jafnskjótt og máltaka hefst eða frá þeim tíma sem heyrnarleysi, heyrnarskerðing eða samþætt sjón- og heyrnarskerðing hefur greinst. Sama rétt eiga nánustu aðstandendur.
Táknmálsrannsóknir
Íslenska táknmálið er eitt af táknmálum heimsins en táknmál eru ekki alþjóðleg heldur eru þau sjálfsprottin mál sem verða til í samskiptum döff fólks.
Táknmálsráðgjöf
Hlutverk ráðgjafa Samskiptamiðstöðvar er að þjónusta fjölskyldur táknmálsbarna og miðla upplýsingum um íslenskt táknmál til foreldra eða forsjáraðila þeirra