Græn skref SHH
Samskiptamiðstöð tekur þátt í grænum skrefum fyrir ríkisstofnanir sem miðar að því að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi sinni og efla umhverfisvitund starfsmanna.
Við hvetjum viðskiptavini okkar til að velja umhverfisvænan ferðamáta þegar komið er til okkar að Laugavegi 166, við erum á 5. hæð í húsinu.
Bílastæði fyrir hreyfihamlað fólk er fyrir framan húsið við innganginn og lyfta er í húsinu.
Hjólagrindur eru fyrir framan húsið. Verkfæri og hjólapumpu eru hægt að fá að láni hjá okkur ef þarf.
Strætó stansar á Laugavegi spölkorn frá húsnæði Samskiptamiðstöðvar. Þar stansa strætisvagnar 2, 5, 14, 15 og 17. (26. ágúst 2024)
Gjaldfrjáls bílastæði eru fyrir framan aðalinngang.
Við hvetjum einnig til rafrænna samskipta í stað heimsókna og í boði er að halda fjarfundi.