Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Slysakort

Slysa­kort Samgöngu­stofu

Á slysakortinu er hægt að finna ítarlegar upplýsingar um umferðarslys sem hafa orðið á Íslandi frá árinu 2007 til og með ársins 2025.

Skoða slysakort


Leiðbeiningar um notkun slysakortsins


Tegundir slysa og alvarleiki

Þú getur síað eftir tegund atviks: óhapp án meiðsla, minniháttar slys, alvarlegt slys eða banaslys.
Sjá leiðbeiningar.

Hitakort

Kveiktu á Hitakorti til að sjá þéttleika slysa sem litasvæði í stað punkta — því fleiri og alvarlegri slys á svæði, því „heitara" verður það. Litirnir eru alltaf afstæðir miðað við það sem er í mynd hverju sinni, svo þeir breytast þegar þú skiptir um tímabil, alvarleika, slysategund eða þysjar. Athugið: þéttbýli „yfirgnæfir" jafnan dreifbýli í samanburði. Sjá leiðbeiningar.

Bakgrunnsmynd

Skiptu á milli kortagerða með ​< og > efst á hnappastikunni: svarthvítt kort (sjálfgefið), litað kort, kort+loftmynd saman, eða hrein loftmynd. Sjá leiðbeiningar.

Upplýsingar um stök slys

Smelltu á punkt til að sjá afstöðumynd af atvikinu, ásamt tíma, staðsetningu, ökutækjum og upplýsingum um slasaða. Sjá leiðbeiningar.

Gögn á töfluformi

Smelltu á tannhjólið efst hægra megin.
Veldu hnappinn með tígli/+ til hægri af þeim tveimur sem birtast.
Smelltu á hvert horn svæðisins sem þú vilt afmarka (ekki halda músarhnappnum niðri).
Tvísmelltu á síðasta hornið.
→ Tafla birtist með öllum slysum innan svæðisins — gagnlegt fyrir hverfi, sveitarfélög eða sýslur. Sjá leiðbeiningar.

Annað sem er í boði

Rauntímafærð, veðurupplýsingar, þjónusta og afþreying birtast einnig á kortinu. Vinstri hnappurinn við tannhjólið gerir þér kleift að mæla vegalengdir og flatarmál. Sjá leiðbeiningar.

Hér að neðan er myndband þar sem farið er yfir helstu aðgerðir sem mögulegar eru á kortinu og undir myndbandinu er einnig gerð grein fyrir þeim aðgerðum.