Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Vorfundur smábátasjómanna haldinn í fyrsta skipti þann 9. apríl 2026

31. mars 2026

Fimmtudaginn 9. apríl 2026 halda Landssamband smábátaeigenda, Samgöngustofa og Slysvarnafélagið Landsbjörg sameiginlegan vorfund smábátasjómanna um öryggi á sjó. Þetta er í fyrsta skipti sem fundur af þessu tagi er haldinn.

Fundurinn fer fram á netinu til að tryggja að smábátasjómenn um land allt geti fylgst með. Útsending fundarins er kl. 17:00-18:30. Samhliða verða einingar Slysavarnafélagsins Landsbjargar með opið hús á 16 stöðum víðs vegar um landið þar sem sjómenn úr nærumhverfinu geta komið saman, fengið sér kaffi og fylgst með fundinum í sameiningu.

Upplýsingar um dagskrá, staðsetningar, útsendingarhlekk og annað sem tengist fundinum má finna hér.

Á fundinum munu meðal annars fulltrúar Samgöngustofu, Slysavarnaskóla sjómanna og Landhelgisgæslu Íslands fjalla um mál sem eru efst á baugi þegar kemur að öryggi sjómanna, nú þegar styttist í að strandveiðar hefjist. Sérstök áhersla verður lögð á öryggi við frágang gúmmíbjörgunarbáta um borð. Auk þess verður kynntur nýr bæklingur og fræðsluauglýsing sem unnin hefur verin í samvinnu Slysvarnafélagsins Landsbjargar og Samgöngustofu.

Fundurinn er opinn öllum sem láta sig öryggi sjómanna varða og eru smábátasjómenn sérstaklega hvattir til að taka þátt og fylgjast með.