Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Vel heppnað Umferðarþing

24. september 2026

Á þriðjudaginn fór fram vel heppnað Umferðarþing Samgöngustofu í Gamla Bíói. Þingið var mjög vel sótt og vel setið allan tímann.

Á þriðjudaginn fór Umferðarþing Samgöngustofu í Gamla Bíói. Þingið var mjög vel sótt og vel setið allan tímann. Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu, setti þingið í kjölfarið flutti Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra ávarp sem nú er hægt að lesa á vef Stjórnarráðsins. Óli Gunnar Gunnarsson leikari sá um fundarstjórn og gerði það einstaklega vel.

Raddir og sjónarmið yngri vegfarenda fengu aukið vægi á þessu þingi. Einn fulltrúi var frá grunnskóla, einn á framhaldsskólaaldri og einn háskólanemi. Þau sögðu frá því hvernig þau upplifa umferðina, viðhorf þeirra til öryggis, regluverks og eigin hegðunar í umferðinni.

Sérfræðingar frá ólíkum sviðum deildu þekkingu sinni og reynslu með áherslu á unga vegfarendur. Mikilvægt samtal átti sér stað á þinginu á milli ólíkra faghópa sem mun vonandi koma til með að leiða af sér gott samstarf í málefnum umferðaröryggis ungs fólks.

Við þökkum fyrirlesurum dagsins kærlega fyrir að leggja sitt af mörkum til ráðstefnunarinnar. Eins viljum við þakka kærlega þeim sem komu og sátu þingið með okkur. Saman getum við stuðlað að jákvæðri þróun í umferðaröryggismálum ungs fólks.