Úttektaraðili rafrænnar skrár leigubifreiðastöðva
26. maí 2026
Samgöngustofa auglýsir eftir umsóknum frá sjálfstæðum og óháðum aðilum til að framkvæma árlegar úttektir á rafrænni skrá leigubifreiðastöðva, í samræmi við lög um leigubifreiðaakstur nr. 120/2022.

Hlutverk úttektaraðila
Úttektaraðili skal framkvæma úttekt á rafrænni skrá leigubifreiðastöðva með sérstakri áherslu á:
öryggi og gæði gagna
skráningu, miðlun og varðveislu gagna í rafrænum kerfum
aðgengi eftirlitsaðila að upplýsingum í rauntíma
að kerfin uppfylli kröfur um gagnavernd, dulkóðun og aðgangsstýringu
áreiðanleika rafrænnar skrár um seldar ferðir, þ.m.t. gervihnattaupplýsingar, verðupplýsingar og auðkenni ökutækja og leyfishafa.
Úttektaraðili skal gera skýrslu um framkvæmd úttektarinnar og skila henni til Samgöngustofu.
Hæfniskröfur
Umsækjandi skal uppfylla eftirfarandi skilyrði:
starfrækja stjórnkerfi á sviði gæða-og/eða upplýsingaöryggis samkvæmt viðurkenndum, alþjóðlegum stöðlum
úttektaraðili skal uppfylla kröfur samkvæmt einum af eftirfarandi stöðlum eða sambærilegar kröfur:
ISO 27001 um stjórnun upplýsingaöryggis
ISO 9001 um gæðastjórnun
vera sjálfstæður og óháður þeim aðilum sem teknir eru út, þ.e. úttektaraðili má ekki hafa:
þróað eða rekið viðkomandi kerfi
sinnt reglubundinni ráðgjöf fyrir leigubifreiðastöð sem tekin er út
átt fjárhagslegra hagsmuna að gæta
komið að hönnun kerfisins
hafa reynslu af sambærilegum úttektum á hugbúnaðar- eða upplýsingakerfum, einkum þar sem gerðar eru kröfur um öryggi, gæði og meðferð viðkvæmra gagna
úttektir skulu framkvæmdar samkvæmt viðurkenndum aðferðum við úttektir upplýsingakerfa og upplýsingaöryggis
geta sýnt fram á reynslu við framkvæmd sambærilegra úttekta, hvort heldur með:
tilteknum fjölda úttekta, eða
sambærilegri starfsreynslu sem Samgöngustofa metur fullnægjandi
hafa þekkingu á sambærilegum kerfum sem halda utan um rafræn gögn, þar með talið:
gervihnattaupplýsingar,
miðlun upplýsinga í rauntíma,
aðgangsstýringu fyrir eftirlitsaðila og neytendur
hafa þekkingu á kröfum sem lúta að gagnavernd og persónuvernd.
Kostnaður og eftirlit
Leigubifreiðastöðvar bera kostnað af árlegum úttektum úttektaraðila.
Samgöngustofa hefur eftirlit með gæðum og niðurstöðum úttekta.
Samgöngustofa getur látið framkvæma viðbótarúttekt telji stofnunin tilefni til
komi í ljós verulegir annmarkar sem geta haft áhrif á öryggi leigubifreiðaþjónustu getur Samgöngustofa ákveðið að leigubifreiðastöð beri kostnað af slíkri viðbótarúttekt.
Umsókn
Umsókn skal innihalda upplýsingar um:
reynslu umsækjanda af sambærilegum úttektum
dæmi um verkefni sem umsækjandi hefur sinnt
lýsingu á hæfni og aðferðum við úttekt stafrænna kerfa
staðfestingu á hlutleysi aðila
Samgöngustofa fer yfir umsóknir og samþykkir þá umsækjendur sem uppfylla framangreind skilyrði.
Umsóknir berist á netfangið samgongustofa@samgongustofa.is.
