Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Uppfært skipulag Samgöngustofu

4. maí 2026

Uppfært skipulag Samgöngustofu tók gildi 1. maí.

Skipulagið styður við mikilvægt hlutverk og framtíðarstefnu stofnunarinnar. Því er ætlað að styrkja faglega ábyrgð, skýra verkaskiptingu og auka samhæfingu. Stoðeiningar sameinast undir skrifstofu forstjóra og um leið leggst stjórnsýslusvið af sem sérstök eining. Mönnun Samgöngustofu er óbreytt en ábyrgð og verkefni færast til í samræmi við nýtt skipulag.

Uppfært skipurit endurspeglar þessar breytingar, auk þeirrar þróunar sem orðið hefur hjá Samgöngustofu á undanförnu ári. Með því er lagður grunnur að skýrari starfsháttum og vinnuumhverfi sem styður við öfluga þjónustu við samfélagið.