Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Uppfærsla HMS veldur tímabundinni truflun á eigendaskiptum

4. júní 2026

Tímabundnar truflanir verða á eigendaskiptum ökutækja helgina 5.–7. júní vegna uppfærslu á gagnagrunnum fasteignaskrár HMS.

Vegna uppfærslu á gagnagrunnum fasteignaskrár HMS helgina 5.–7. júní verður truflun á eigendaskiptum ökutækja á meðan uppfærslan stendur yfir.

Gert er ráð fyrir að uppfærslan hefjist kl. 17:00 á föstudag og ljúki um kl. 13:00 á sunnudag.

Á þessu tímabili verður ekki hægt að sækja upplýsingar um veðbönd og búast má við hægagangi á þjónustum.