Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Umferðarþing 2026

17. september 2026

Umferðarþing Samgöngustofu verður haldið þriðjudaginn 22. september 2026 í Gamla Bíói.

Dagskrá

Samgöngustofa boðar til Umferðarþings 2026 sem haldið verður þann 22. september næstkomandi í Gamla Bíói. Yfirskrift þingsins í ár er „Ungt fólk og umferðin“.

Á þinginu verður sjónum beint að stöðu, reynslu og viðhorfum ungs fólks í umferðinni, sem og þeim áskorunum og tækifærum sem felast í því að stuðla að auknu umferðaröryggi og ábyrgri þátttöku þeirra í samgöngum.

Sérfræðingar frá ólíkum sviðum tengdum umferðaröryggi deila þekkingu sinni og reynslu með áherslu á unga vegfarendur. Auk þess heyrum við beint frá unga fólkinu sjálfu, hvernig þau upplifa umferðina og fáum innsýn í hugarheim þeirra og hugmyndir um hvernig hægt sé að stuðla að öruggari umferð.

Umferðarþingið er vettvangur fyrir faglegt samtal, miðlun þekkingar og skoðanaskipti um umferðaröryggi og samgöngur. Þingið er ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á öruggri og ábyrgri þátttöku í umferðinni og vilja leggja sitt af mörkum til jákvæðrar þróunar í umferðaröryggismálum.

Hér er skráningarhlekkur þar sem hægt er að skrá sig og nálgast frekari upplýsingar um þingið sjálft.

Samgöngustofa hlakkar til að taka á móti ykkur í Gamla Bíói næstkomandi þriðjudag á Umferðarþingi Samgöngustofu 2026.