Um eftirlit með köfunarstarfsemi
25. september 2026
Eftirlit með köfunarstarfsemi er í höndum Samgöngustofu og Landhelgisgæslunnar en stofnanirnar hafa nú undirritað þjónustusamning um að Landhelgisgæslan muni sinna vettvangseftirliti með köfun í umboði Samgöngustofu.

Til þess að stuðla að öryggi við köfun gilda skýrar reglur um starfsemina í lögum nr. 81/2018 um köfun og í reglugerð nr. 535/2001 um köfun. Þar er meðal annars kveðið á um kröfur til þeirra sem stunda köfun eða kenna hana, sem og til búnaðar sem notaður er við köfun.
Líkt og fram kom í frétt Samgöngustofu fyrir ári síðan hafa Samgöngustofa og Landhelgigæsla Íslands heimildir til að sinna eftirliti með köfunarstarfsemi og ákváðu stofnanirnar að efla eftirlit á vettvangi.
https://island.is/frett/vettvangseftirlit-med-koefun

Stofnanirnar hafa nú undirritað þjónustusamning um að Landhelgisgæsla Íslands muni sinna vettvangseftirliti með köfun í umboði Samgöngustofu.
Geta aðilar sem stunda köfun í atvinnuskyni átt von á tilkynningu frá Landhelgisgæslunni um eftirlit á næstu mánuðum. Eftirlitsgjald verður innheimt í samræmi við gildandi heimildir.
