Tímabundið drónabann yfir Reykjanesbæ 4. til 6. september 2026
31. ágúst 2026
Að beiðni Lögreglustjórans á Suðurnesjum verður allt drónaflug bannað á afmörkuðu svæði yfir Reykjanesbæ.

Drónabannið gildir frá kl. 12:00 föstudaginn 4. september 2026 og stendur til kl. 08:00 sunnudaginn 6. september 2026.
Drónabannið gildir í öllum flughæðum innan skilgreinds bannsvæðis sem merkt er með gulum ramma á meðfylgjandi korti.
Hnit:
A | B | C | D | E |
|---|---|---|---|---|
N 63 59.584 V -22.34.123 | N 63 59.723 V -22.31.706 | N 64 00.978 V -22.32.189 | N 64 01.004 V -22.35.110 | N 64 00.102 V -22.34.325 |
Drónabannið er sett af öryggisástæðum þar sem búist er við miklum fjölda fólks á svæðinu vegna menningarhátíðarinnar Ljósanótt 2026.
Undanþágur: Drónaflug er aðeins heimilt með sérstöku leyfi Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Umsóknir um undanþágu skal sendast á uav.sudurnes@logreglan.is.
Bannið er sett á grundvelli d-liðar 3. gr. reglugerðar nr. 1360/2024.
