Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Tímabundið drónabann í miðborg Reykjavíkur og nágrenni 5. og 6. október 2026

5. október 2026

Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið að setja á tímabundið bann við flugi ómannaðra loftfara (dróna) eða annarra fjarstýrðra loftfara vegna almannaöryggis og öryggisgæslu.

Drónabannið er sett af öryggisástæðum vegna heimsóknar Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

Gildistími drónabannsins er frá og með kl 17:00 að kvöldi mánudags 5. október til kl 16:00 þriðjudaginn 6. október 2026.

Óheimilt verður að fljúga dróna, eða öðrum fjarstýrðum loftförum, innan rauðþekjaðs svæðis á fyrrgreindu tímabili.

Ómönnuðum loftförum, drónum og öðrum fjarstýrðum loftförum er óheimilt að vera á lofti eða í 500 metra radíus frá lögreglufylgd bílalestar.

Lögreglan mun starfrækja drónahópa sem munu sinna löggæslu og eftirliti úr lofti. Virkt eftirlit verður haft með óleyfilegu drónaflugi.

Óheimilt flug getur varðað sektum og haldlagningu búnaðar.

Bannið er sett á grundvelli d-liðar 3. gr. reglugerðar nr. 1360/2024.

Hnit:

1) 64° 7.854′ N, 21° 53.022′ W

2) 64° 8.317′ N, 21° 56.397′ W

3) 64° 8.779′ N, 21° 57.320′ W

4) 64° 9.356′ N, 21° 56.297′ W

5) 64° 9.287′ N, 21° 52.850′ W