Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Tímabundið drónabann á Vestfjörðum 12. ágúst 2026

6. ágúst 2026

Að beiðni Lögreglustjórans á Vestfjörðum verður allt drónaflug bannað á tveimur afmörkuðum svæðum á Vestfjörðum.

  • Dagsetning: 12. ágúst 2026

  • Tími: Kl. 15:00 - 19:00

  • Gildir í öllum flughæðum innan skilgreindra bannsvæða sem merkt eru með rauðum ramma á meðfylgjandi korti.

Drónabannið er sett af öryggisástæðum vegna þess að búist er við miklum fjölda fólks á svæðunum til að fylgjast með almyrkva á sólu.

Undanþágur: Drónaflug er aðeins heimilt með sérstöku leyfi Lögreglustjórans á Vestfjörðum. Umsóknir um undanþágu skal sendast á vestfirdir@logreglan.is.

Bannið er sett á grundvelli d-liðar 3. gr. reglugerðar nr. 1360/2024.