Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Tímabundið bann við flugi dróna yfir Gömlu höfninni í Reykjavík 3. til 7. september 2026

1. september 2026

Samgöngustofa hefur samþykkt tímabundið bann við flugi ómannaðra loftfara (dróna) yfir Gömlu höfninni í Reykjavík og nærliggjandi svæði vegna almannaöryggis og öryggisgæslu.

  • Afmarkað svæði (hringur):

    • Miðja: 64° 09,17′ N 21° 56,27′ W

    • Geisli (radíus): 500 metrar (0.27 NM)

Gildistími drónabanns: 3. september 2026 kl. 00:00 – 7. september 2026 kl. 23:59

  • Lóðrétt mörk: Frá yfirborði – 122 metrar (400 fet)

Allt flug ómannaðra loftfara innan þessa svæðis er með öllu óheimilt á tilgreindu tímabili nema með sérstöku leyfi. Umsóknir um undanþágu skal senda á vms@utn.is

Óheimilt flug getur varðað sektum og haldlagningu búnaðar

Bannið er sett á grundvelli d-liðar 3. gr. reglugerðar nr. 1360/2024.