Skráningarsíða fyrir umráðamenn dróna
9. nóvember 2022
Með væntanlegri innleiðingu nýrrar reglugerðar um starfrækslu dróna myndast krafa um að umráðendur dróna skrái sig hjá flugmálayfirvöldum.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/0Ykw3uwMHsh7HI56ovM7K/4b226ef3d44a6c11dd07f87949a1cae0/mynd_droni-002-litil.jpeg?w=50&fm=webp&q=80)
![mynd af dróna](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/0Ykw3uwMHsh7HI56ovM7K/4b226ef3d44a6c11dd07f87949a1cae0/mynd_droni-002-litil.jpeg?w=774&fm=webp&q=80)
Samgöngustofa hefur nú opnað skráningarsíðuna www.flydrone.is þar sem umráðendur dróna hafa þann kost að skrá sig, kynna sér námsefni og taka próf í undirflokki A1/A3 fyrir opna flokkinn. Eftir að hafa lokið prófi með viðunandi árangri mun viðkomandi fá útgefið hæfnisvottorð sem gildir í öllum aðildarríkjum Evrópusambandsins.
Skráningargjaldið er byggt á útseldri tímavinnu Samgöngustofu og er kr. 5.500 fyrir hverja skráningu.
Eftir skráningu er hægt að taka A1/A3 prófið án endurgjalds.