Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Samgöngustofa undirritar samstarfssamning við Flugmálastjórn Kína

20. maí 2026

Hinn 19. maí tók Samgöngustofa á móti sendinefnd frá Flugmálastjórn Kína, Civil Aviation Administration of China, CAAC, í tilefni af undirritun samstarfssamnings á sviði flugmála.

Kristín Helga Markúsdóttir frá Samgöngustofu og Hu Zhenjiang frá Flugmálastjórn Kína.

Samningurinn, sem er svokallað working arrangement, nær til samstarfs um lofthæfi og umhverfisvottun loftfara, framleiðsluvara, hluta og búnaðar, auk vottunar hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.

Þetta er fyrsti samningur sinnar tegundar sem íslensk og kínversk flugmálayfirvöld gera með sér. Samgöngustofa hefur áður gert sambærilega samninga við Bandaríkin, Kanada, Bretland og Japan.

Með samningnum er samstarf íslenskra og kínverskra flugmálayfirvalda eflt með sambærilegum hætti og gert hefur verið milli Evrópusambandsins, Flugöryggisstofnunar Evrópu, EASA, og Flugmálastjórnar Kína.

Samningurinn gerir meðal annars EASA-samþykktum hönnunarfyrirtækjum, DOA, á Íslandi kleift að fá hönnun, breytingar og viðgerðir samþykktar með einfaldari hætti í Kína. Þar með skapast betri forsendur fyrir íslensk fyrirtæki til að bjóða kínverskum flugrekendum þjónustu sína og hönnunarlausnir.

Samningurinn kveður á um gagnkvæmt samstarf og viðurkenningu á sviði lofthæfis og vottunar, með sambærilegum hætti og tíðkast í samstarfi Flugöryggisstofnunar Evrópusambandsins (EASA) og flugmálastjórnar Kína (CAAC) og stuðlar þannig að auknu gagnkvæmu trausti á sviði lofthæfis og flugöryggis.