Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Öryggi í flugþjónustu og mikilvægi starfsleyfa

6. maí 2025

Í fréttaskýringaþættinum Kveik sem sýndur var 15. apríl 2025 komu fram vísbendingar um að aðilar án tilskilinna starfsleyfa í flugi hafi tekið að sér verkefni fyrir fyrirtæki og stofnanir. Samgöngustofa hvetur einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir sem kaupa flugþjónustu til að ganga úr skugga um að viðkomandi þjónustuaðili hafi öll nauðsynleg leyfi.

Samkvæmt lögum er óheimilt að starfrækja loftför í ábataskyni, svo sem að fljúga með farþega gegn gjaldi, nema með gildu flugrekstrarleyfi. Slík leyfi eru háð öryggiskröfum sem ná meðal annars til starfrækslu og viðhalds loftfara, sem og heilbrigðis og þjálfunar flugmanna. Eftirlit með handhöfum flugrekstrarleyfa er jafnframt umfangsmeira en með almannaflugi, þ.e. flugi sem ekki er rekið í ábataskyni.

Samgöngustofa hvetur einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir sem kaupa flugþjónustu til að ganga úr skugga um að viðkomandi þjónustuaðili hafi öll nauðsynleg leyfi.

Á heimasíðu Samgöngustofu má finna lista yfir handhafa starfsleyfa fyrir rekstur loftfara í ábataskyni.