Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Nýtt kerfi fyrir afgreiðslu undanþága

4. febrúar 2026

Samgöngustofa hefur tekið í notkun nýtt rafrænt kerfi fyrir afgreiðslu undanþága. Umsóknarferlið helst að mestu óbreytt en umsækjendur eru beðnir um að kynna sér eftirfarandi breytingar sem fylgja nýja kerfinu.

Helstu breytingar

  • Nú þarf rafræna innskráningu sem fer fram í gegnum Ísland.is.

  • Kerfið er samtengt ökutækjaskrá og aðeins hægt að sækja um undanþágu fyrir einn bíl eða eina vagnlest hverju sinni.

  • Sé sótt um þyngdarundanþágu þarf að skrá bil milli ása í umsókn.

  • Umsækjendur þurfa að setja inn greinargóða leiðarlýsingu frá upphafsstað til áfangastaðar

Afgreiðsla undanþága helst óbreytt að öðru leyti og berast samþykktar undanþágu áfram í tölvupósti.