Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Ný stafræn þjónusta í siglingum

1. september 2026

Ný stafræn þjónusta Samgöngustofu gerir skipaeigendum og sjómönnum kleift að nálgast mikilvægar upplýsingar um sín mál á Ísland.is.

Eigendur skipa og báta geta nú skoðað upplýsingar um skip sín undir „Eignir og tæki“ á Mínum síðum. Þar má sjá skráningarupplýsingar um skipin, tæknilegar upplýsingar og gildistíma helstu skipsskírteina.

Sjómenn geta jafnframt nálgast upplýsingar um sig á Mínum síðum undir „Starfsleyfi“. Þar er hægt að sjá upplýsingar um gild atvinnuskírteini, próf, nám og námskeið, undanþágur, sjóferðabækur og lögskráningardaga/siglingatíma .

Með þessum nýjungum verða upplýsingar sem áður voru eingöngu sýnilegar í Skútunni nú aðgengilegar á Mínum síðum á Ísland.is. Þær veita skipaeigendum og sjómönnum betri yfirsýn yfir eigin mál og auðvelda þeim að fylgjast með upplýsingum sínum og nýta þjónustu Samgöngustofu.