Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Ný skýrsla um notkun hjálma á raf- og reiðhjólum

12. júní 2026

Í vor var gerð könnun um notkun hjálma á raf- og reiðhjólum. Niðurstöðurnar gefa samanburð á hjálmanotkun á stígum annars vegar og inni í hverfum hins vegar, svo og samanburð á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni.

Niðurstöður skýrslunnar eru um margt áhugaverðar. Hjálmanotkun á reiðhjólum er um 85% sem er nánast óbreytt frá síðustu könnun fyrir fjórum árum. Notkunin er aðeins meiri á stígum en inni í hverfum eða 87% á stígum og 83% við skóla. Hins vegar er hjálmanotkun barna (ca. 13 ára og yngri) 98% og voru aðeins fjögur börn af tæplega 200 hjálmlaus.

Á rafhlaupahjólum er hjálmanotkunin töluvert verri. Á hjólum í einkaeigu er 51% hjálmanotkun en á leiguhjólum er hún aðeins um 6%. Á leiguhjólunum er hjálmanotkun þó um 12% við skóla en aðeins um 2% á stígunum.

Á léttum bifhjólum er hjálmanotkun 88% og er það talsverð bæting frá árinu 2022 en þá var hún 75%.

Hjálmanotkun á landsbyggðinni var í öllum tilfellum betri en á höfuðborgarsvæðinu. Á reiðhjólum, þar sem úrtakið er stærst og marktækast, er hjálmanotkun 88% á landsbyggðinni en 84% á höfuðborgarsvæðinu.

Athygli vekur að fjöldi reiðhjóla var næstum fimm sinnum meiri en fjöldi rafhlaupahjóla og má því ætla að notkun reiðhjóla sé um fimm sinnum meiri en notkun rafhlaupahjóla. Í ljósi þess og að fleiri slasast á rafhlaupahjóli en á reiðhjóli má reikna til að líkur á að slasast á rafhlaupahjóli eru um sjö sinnum meiri en líkur á að slasast á reiðhjóli.