Ný reglugerð um umferðarmerki
4. mars 2024
Ný reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra tók gildi 1. mars 2024
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3ZjmcXUJT2Xplf4gXUgVLP/534a4ec6b6a9299c85a68cfc2036287e/Umfer_armerki_1._mars_2024.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Samgöngustofa umferðarmerki](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3ZjmcXUJT2Xplf4gXUgVLP/534a4ec6b6a9299c85a68cfc2036287e/Umfer_armerki_1._mars_2024.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Ný reglugerð, nr. 250/2024 um umferðarmerki og notkun þeirra tók gildi hinn 1. mars 2024. Er þar að finna mörg ný merki, breytingar á merkjum sem fyrir eru og nýja flokkun merkja. Á vef Samgöngustofu (https://island.is/s/samgongustofa/umferdarmerki) er að finna síðu þar sem farið er yfir allar breytingar sem eiga sér stað með gildistöku reglugerðarinnar. Við hvetjum áhugasöm til að skoða síðuna, nýju merkin og aðrar breytingar. Á vef Stjórnarráðsins má finna ítarlegri umfjöllun um reglugerðina.