Námskeið fyrir prófdómara 16. október 2025
24. september 2025
Samgöngustofa mun halda námskeið fyrir prófdómara flugskírteina á fjölstjórnarvélar 16. október næstkomandi í Flugröst.

Námskeiðið verður haldið í Flugröst
Samgöngustofa mun halda námskeið fyrir prófdómara flugskírteina á fjölstjórnarvélar (TRE/SFE/CRE) fimmtudaginn 16. október í Flugröst, Nauthólsvegi 99, frá kl. 9:00 til 16:00.
Skilyrði fyrir endurnýjun/framlengingu prófdómararéttinda er að umsækjandi hafi setið slíkt námskeið á síðastliðnum 12 mánuðum.
Vinsamlegast sendið skráningu með tölvupósti á netfangið fcl@icetra.is eigi síðar en 2 vikum fyrir áætlaðan námskeiðsdag. Samgöngustofa áskilur sér rétt til að velja inn á námskeiðið eftir gildistíma réttinda ef til þess kemur að fleiri en 20 skrái sig. Tilgreina þarf nafn þátttakanda, skírteinisnúmer, tölvupóstfang og nafn flugrekanda (ef við á) við skráningu.
Þátttakendur eru beðnir um að hafa með sér fartölvu á námskeiðið, ef mögulegt.
Námskeiðsgjaldið er samkvæmt gildandi gjaldskrá Samgöngustofu. Innifaldar eru veitingar meðan á námskeiði stendur.
