Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Loftferðaréttindi gagnvart Filippseyjum í höfn

24. ágúst 2026

Íslensk stjórnvöld hafa tryggt loftferðaréttindi á Filippseyjum. Samkomulag um loftferðir milli ríkjanna og texti nýs loftferðasamnings var áritaður 18. ágúst að afloknum viðræðum milli ríkjanna sem fram fóru í Reykjavík.

Samninganefndir Íslands og Filippseyja funduðu í húsakynnum utanríkisráðuneytisins og undirrituðu samkomulag 18. ágúst sl.

Viðræðurnar fóru fram að frumkvæði Íslands, en fram að þessu hefur enginn loftferðasamningur verið í gildi milli ríkjanna.

Samkomulagið og loftferðasamningurinn skapa lagalegan grundvöll fyrir loftferðir milli Íslands og Filippseyja. Þar er meðal annars kveðið á um gagnkvæm flugréttindi, samstarf flugfélaga, farþega- og fraktflug, flugöryggi og flugvernd.

Með undirritun samkomulagsins er unnt að beita ákvæðum loftferðasamningsins til bráðabirgða þar til hann hefur verið undirritaður og öðlast gildi í samræmi við málsmeðferðar reglur ríkjanna tveggja.

Edgar B. Badajos, aðstoðarráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneyti Filippseyja og formaður filippseysku samninganefndarinnar undirritaði samkomulagið fyrir hönd ríkisstjórnar Filippseyja. Sigríður Eysteinsdóttir, deildarstjóri í utanríkisráðuneytinu og aðalsamningamaður Íslands á sviði loftferðasamninga, undirritaði samkomulagið fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands.

Auk Sigríðar sátu í samninganefnd Íslands þær Vala Hrönn Viggósdóttir lögfræðingur hjá innviðaráðuneytinu og Kristín Helga Markúsdóttir yfirlögfræðingur hjá Samgöngustofu.