Kyrrsetning Bandero og staða málsins
21. ágúst 2026
Samgöngustofa hefur undanfarna daga svarað fyrirspurnum fjölmiðla um hafnarríkiseftirlit og kyrrsetningu skipsins Bandero. Af því tilefni telur Samgöngustofa rétt að gera grein fyrir helstu forsendum málsins og stöðu þess.

Ákvörðun um skoðun skipsins var tekin eftir að upplýsingar bárust frá Vaktstöð siglinga um annmarka á öruggri siglingu skipsins. Meðal annars lágu fyrir upplýsingar um að AIS-staðsetningarkerfi skipsins hafði ekki verið virkt. Í kjölfarið var framkvæmd skoðun á skipinu 31. júlí þar sem farið var yfir hvort alþjóðlegar kröfur sem skipinu ber að fylgja væru uppfylltar. Við skoðunina var nauðsynlegum gögnum ekki framvísað, meðal annars gildu alþjóðlegu mælibréfi, sjókortum og staðfestingu á skoðun AIS-staðsetningarkerfisins.
Alþjóðlegt mælibréf er lögboðið skírteini sem staðfestir opinbera stærð skips. Það er meðal grundvallargagna sem notuð eru við framfylgd alþjóðlegra reglna um öryggi og eftirlit. Skip í alþjóðasiglingum skulu hafa gilt mælibréf um borð og geta framvísað því við hafnarríkiseftirlit.
Bandero var skráð undir fána Panama 30. apríl 2026. Samkvæmt upplýsingum sem Samgöngustofa aflaði frá fánaríkinu Panama 6. ágúst hafði ekki verið sótt um nýtt mælibréf fyrir skipið. Þann 11. ágúst var Samgöngustofu framvísað mælibréfi frá fyrra fánaríki skipsins ásamt skoðunarskýrslu vegna AIS-staðsetningarkerfisins en samkvæmt gildandi kröfum ber skipinu að hafa alþjóðlegt mælibréf útgefið af fánaríkinu Panama.
Samgöngustofa tók engin gögn eða skjöl frá borði skipsins við framkvæmd skoðunarinnar.
Í samskiptum við fulltrúa skipsins og við endurskoðun málsins hefur verið kallað eftir þeim gögnum og upplýsingum sem nauðsynleg eru til að staðfesta að skipið uppfylli lögbundnar kröfur. Samkvæmt upplýsingum sem liggja fyrir vantar enn að staðfesta ákveðin lögbundin gögn, gilt alþjóðlegt mælibréf og nauðsynleg sjókort vegna fyrirhugaðrar siglingar skipsins.
Samgöngustofa sinnir lögbundnu hlutverki sínu á sviði siglingaöryggis og hafnarríkiseftirlits. Mat stofnunarinnar byggir á gildandi lögum, alþjóðlegum reglum og þeim upplýsingum og gögnum sem liggja fyrir hverju sinni.
Kyrrsetning skipsins byggir á þeim gögnum og upplýsingum sem liggja fyrir í málinu. Þegar lögbundnum kröfum hefur verið fullnægt og nauðsynleg gögn hafa verið staðfest í endurskoðun hafnarríkiseftirlits verður kyrrsetningu Bandero aflétt.
