Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Höfðaborgarsamþykktin um öryggi fiskiskipa tekur gildi 2027

3. mars 2026

Samþykktin markar tímamót fyrir öryggi fiskiskipa og sjómanna.

Skilyrði fyrir gildistöku Höfðaborgarsamþykktarinnar um öryggi fiskiskipa (Cape Town Agreement) hafa nú verið uppfyllt og mun samþykktin taka formlega gildi í febrúar 2027. Samþykktin er á vegum Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO) og markar tímamót í alþjóðlegu öryggi fiskiskipa og sjómanna.

Höfðaborgarsamþykktin felur í sér bindandi og samræmda öryggisstaðla fyrir fiskiskip lengri en 24 metrar, meðal annars hvað varðar hönnun, búnað, stöðugleika, skoðanir og björgunarbúnað. Um 45 þúsund fiskiskip á heimsvísu munu falla undir samþykktina þegar hún tekur gildi.

Samgöngustofa, og einn forveri hennar, Siglingastofnun Íslands, hafa frá upphafi átt virkan þátt í vinnu við samþykktina og framgang hennar innan IMO. Innviðaráðherra og forstjóri Samgöngustofu ásamt fulltrúum ráðuneytis og stofnunarinnar, sátu Aðalþing IMO síðastliðið haust og tóku virkan þátt í umræðum um hvernig hægt væri að fullgilda samninginn. Ísland hefur um árabil verið talið fyrirmyndarríki þegar kemur að öryggi sjómanna og fiskiskipa og hefur sú reynsla nýst í alþjóðlegri samvinnu.

Ísland var meðal stofnaðila samþykktarinnar árið 2012 og hefur frá þeim tíma stutt markvisst við gildistöku hennar. Á þingi IMO í nóvember síðastliðnum hvatti innviðaráðherra aðrar þjóðir til að fullgilda samþykktina, meðal annars í samtölum við fulltrúa ríkja með stóra fiskiskipaflota. Með aðild Argentínu í lok febrúar náðist það lágmark sem þarf til að samþykktin taki gildi.

Með gildistöku samþykktarinnar munu aðildarríki þurfa að innleiða ákvæði hennar í landslög og tryggja að fiskiskip uppfylli samræmdar kröfur, óháð því hvar þau stunda veiðar. Þess er vænst að samþykktin stuðli að auknu öryggi á sjó, bættum vinnuskilyrðum sjómanna, minni mengun og sanngjarnari samkeppni í alþjóðlegum fiskveiðum.

Sjá einnig frétt Stjórnarráðsins og á vef Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar.