Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Forstjóri Air China í heimsókn hjá Samgöngustofu

28. október 2026

Forstjóri Air China, Qu Guangji, heimsótti Samgöngustofu ásamt sendinefnd þriðjudaginn 27. október í tilefni þess að Air China hefur hafið áætlunarflug milli Peking og Keflavíkur með viðkomu í Kaupmannahöfn. Um er að ræða fyrstu reglubundnu áætlunarflugleiðina milli Íslands og Kína.

Heimsóknin til Samgöngustofu var liður í samskiptum stofnunarinnar og Air China í aðdraganda flugsins. Fulltrúar félagsins funduðu fyrst með Samgöngustofu í júní, þegar farið var yfir helstu atriði sem snúa að leyfisveitingum fyrir flugrekendur frá ríkjum utan EES, verklag, lagakröfur og þau gögn sem þurfa að liggja fyrir við umsókn.

Áætlunarflug Air China byggir á loftferðasamningi milli Íslands og Kína. Fyrr á árinu undirrituðu Samgöngustofa og Flugmálastjórn Kína jafnframt sérstakt samstarfssamkomulag á sviði lofthæfis og vottunar. Sá samningur er aðskilinn loftferðasamningnum og snýr meðal annars að samstarfi flugmálayfirvalda um lofthæfi, hönnun, breytingar og viðgerðir loftfara.

Nýja flugleiðin bætir við tengingar Íslands við Asíu og opnar nýja möguleika fyrir ferðalög milli Íslands og Kína.