Flugöryggi í forgangi
10. júní 2026
Ríkisendurskoðun hefur birt skýrslu um lokun flugbrautar 13/31 á Reykjavíkurflugvelli í febrúar 2025, þar sem fjallað er um aðdraganda málsins, ákvarðanatöku og samstarf þeirra aðila sem komu að.

Í niðurstöðum skýrslunnar kemur fram að bæta megi samráð, samstarf og upplýsingaflæði, auk þess sem þörf sé á skýrari ábyrgð og eftirfylgni í ákveðnum málum sem varða flugöryggi. Jafnframt er áréttað að aðgerðir í þágu flugöryggis geta ekki verið samkomulagsatriði, heldur skulu lúta alþjóðlegum kröfum sem eru ekki umsemjanlegar.
Fjallað er um áhrif lokunarinnar á sjúkraflug, en af hálfu Samgöngustofu var lögð áhersla á að ákvörðun um lokun byggði á öryggissjónarmiðum. Ekki var talið unnt að heimila notkun flugbrautarinnar við aðstæður sem uppfylltu ekki kröfur um öruggt aðflug og brottflug, hvort sem um sjúkraflug eða annað flug væri að ræða.
Því er beint til Samgöngustofu að sett verði verklagsregla um íhlutun með framfylgni skipulagsreglna. Stofnunin gerir ekki athugasemd við ábendinguna og hefur þegar hafið vinnu við gerð slíkrar verklagsreglu.
Markmið Samgöngustofu er að lærdómur af málinu nýtist til að styrkja verklag, samstarf og ákvarðanatöku, þannig að mál sem varða flugöryggi séu unnin á grundvelli skýrra reglna og ábyrgðar.
