Fara beint í efnið

Engir drónar á Fiskideginum mikla á Dalvík

11. ágúst 2023

Af öryggisástæðum hefur lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra ákveðið að banna flug dróna yfir hátíðarsvæði Fiskidagsins mikla á Dalvík, frá því kl. 08:00 laugardaginn 12. ágúst til kl. 08:00 sunnudaginn 13. ágúst.

Drónabann á fiskideginum mikla

Af öryggisástæðum hefur lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra ákveðið að banna flug dróna yfir hátíðarsvæði Fiskidagsins mikla á Dalvík, frá því kl. 08:00 laugardaginn 12. ágúst til kl. 08:00 sunnudaginn 13. ágúst.

Bannsvæðið er vel afmarkað á korti . Bannið gildir ekki um dróna lögreglunnar eða aðra dróna þar sem aflað hefur verið sérstaks leyfis lögreglustjóra.