Drónaflug bannað yfir miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt
4. ágúst 2026
Að beiðni Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu verður drónaflug bannað yfir miðborg Reykjavíkur vegna Menningarnætur 2026.

Svæðið sem um ræðir er merkt með blárri og rauðri þekju á kortinu.
Bláa svæðið er lokað frá kl. 07:00 til 15:00 þann 22. ágúst 2026 vegna Reykjavíkurmaraþons.
Rauða svæðið er lokað frá kl 07:00 22. ágúst 2026 til 06:00 þann 23. ágúst 2026 vegna Menningarnætur.
Allt drónaflug er bannað á svæðunum á þessum tímabilum, nema með sérstöku leyfi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Undanþágubeiðnir skal senda til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gegnum netfangið dronar@lrh.is
Drónabannið er sett á grundvelli d-liðar 3. gr. reglugerðar 1360/2024.
