Drónabann yfir Flensborgarhöfn í Hafnarfirði á sjómannadaginn
31. maí 2024
Óheimilt verður að fljúga dróna yfir Flensborgarhöfn í Hafnarfirði meðan á hátíðarhöldum stendur.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/7tXpP1qTlbjYB3A4Aar3oI/99a7da0e54394d75c112ad783c8e1206/dronabann-hafnarfjardarhofn-2.juni-2024.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Samgöngustofa sjómannadagur drónabann](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/7tXpP1qTlbjYB3A4Aar3oI/99a7da0e54394d75c112ad783c8e1206/dronabann-hafnarfjardarhofn-2.juni-2024.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Bannið er tilkomið vegna öryggisráðstafana. Það gildir meðan á hátíðarhöldum sjómannadagsins 2. júní 2024 stendur, nánar tiltekið frá kl. 13 til 17.
Samanber 5. tl. 12. gr. reglugerðar um starfrækslu fjarstýrðra loftfara nr. 990/2017.
Sjá nánari skilgreiningu á korti sem fylgir með fréttinni.