Drónabann yfir 60 metra hæð yfir jörðu - uppfært 19. júní 2024
19. júní 2024
Bannið gildir til miðnættis 30. júní nk.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/2g96baeCHA0WGQatRmWi8t/d04518d6f00a41fff2c8fc48bb1e3b9e/25.3.2024-BIR62-60.png?w=50&fm=webp&q=80)
![Samgöngustofa dróni](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/2g96baeCHA0WGQatRmWi8t/d04518d6f00a41fff2c8fc48bb1e3b9e/25.3.2024-BIR62-60.png?w=774&fm=webp&q=80)
Vegna eldgoss og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs, hefur Samgöngustofa að beiðni Samhæfingarstöðvar Almannavarna bannað drónaflug yfir 60 metrum yfir jörð og ofar.
Bannið er á svæði sem nær í tveggja sjómílna radius umhverfis eldgosið, miðað er við hnit 635300N02223W, afmarkað sem rauður hringur á mynd. Bannið gildir til miðnættis að kvöldi 30. júní nk. Undanþágubeiðnir berist samhæfingarstöð Almannavarna í netfangið info@sst.is eða í síma 831-1644.
Fréttin var uppfærð 19. júní með framlengdum gildistíma.