Fara beint í efnið

Drónabann við Grindavík

12. nóvember 2023

Vegna líklegs eldgoss í nálægð við Grindavík hefur Lögreglustjórinn á Suðurnesjum bannað drónaflug á tilteknu svæði. Bannið hefur þegar tekið gildi og gildir til miðnættis 29. nóvember nk.

Drónabann við Grindavík

Vegna líklegs eldgoss í nálægð við Grindavík hefur Lögreglustjórinn á Suðurnesjum bannað drónaflug innan svæðis sem markast af eftirfarandi hnitum:
635621N0222218W
635440N0221323W
634641N0222232W
634902N0223533W

Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum er drónaflug bannað á svæðinu til að tryggja öryggi og svigrúm fyrir tafarlaust vísindaflug, svo og aðrar aðkallandi aðgerðir sem kann að þurfa að grípa til með litlum fyrirvara. Er bannið sett með vísan til 12. gr. í reglugerð um starfrækslu fjarstýrðra loftfara nr. 990/2017.

Drónaflug á vegum Ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslunnar er undanþegið. Bannið hefur þegar tekið gildi og gildir til miðnættis 29. nóvember nk.