Drónabann vegna eldgoss
8. febrúar 2024
Bannið gildir til kl. 23:59 þann 15. febrúar 2024.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/0Ykw3uwMHsh7HI56ovM7K/4b226ef3d44a6c11dd07f87949a1cae0/mynd_droni-002-litil.jpeg?w=50&fm=webp&q=80)
![mynd af dróna](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/0Ykw3uwMHsh7HI56ovM7K/4b226ef3d44a6c11dd07f87949a1cae0/mynd_droni-002-litil.jpeg?w=774&fm=webp&q=80)
Vegna eldgoss og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs, hefur Samgöngustofa að beiðni Samhæfingarstöðvar Almannavarna bannað drónaflug á svæði sem nær í fjögurra kílómetra radius umhverfis hnit 6353N02222V. Bannið gildir til kl. 23:59 þann 15. febrúar 2024. Undanþágubeiðnir berist samhæfingarstöð Almannavarna í netfangið info@sst.is eða í síma 831-1644.