Drónabann á ný vegna eldgoss
16. mars 2024
Bannið gildir til kl. 19:00 hinn 17. mars 2024.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/2VqsEf0pJSugzs1IovZ3rX/6dfbbef4402723bd13f8a6da6ca0825d/Dr_nabann_16._mars_2024.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Samgöngustofa drónabann 16. mars 2024](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/2VqsEf0pJSugzs1IovZ3rX/6dfbbef4402723bd13f8a6da6ca0825d/Dr_nabann_16._mars_2024.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Vegna eldgoss og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs, hefur Samgöngustofa að beiðni Samhæfingarstöðvar Almannavarna bannað drónaflug á svæði sem nær í tveggja kílómetra radius umhverfis hnit 6353N02223W, innan svæðis sem kallast BIR4 sbr. AIP SUP 06/24. Bannið gildir til kl. 19:00 hinn 17. mars 2024. Undanþágubeiðnir berist samhæfingarstöð Almannavarna í netfangið info@sst.is eða í síma 831-1644.