Drónabann á Ísafirði vegna Aldrei fór ég suður
31. mars 2026
Að beiðni Lögreglustjórans á Vestfjörðum verður drónaflug bannað yfir hátíðarsvæði rokkhátíðarinnar Aldrei fór ég suður.

Drónabannið gildir:
Frá kl. 19:00 föstudaginn 3. apríl (föstudaginn langa) til kl. 02:00 laugardaginn 4. april, og
Frá kl. 19:00 laugardaginn 4. apríl til kl. 02:00 sunnudaginn 5. apríl (páskadag).
Svæðið er merkt með bláu á kortinu. Allt drónaflug er bannað á svæðinu á þessu tímabili, nema með sérstöku leyfi lögreglustjórans á Vestfjörðum.
Drónabann er sett á grundvelli d-liðar 3. gr. reglugerðar 1360/2024.

