Drónabann á Akureyri og Siglufirði Verslunarmannahelgi 2026
24. júlí 2026
Að beiðni Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra verður drónaflug bannað um verslunarmannahelgina á tilteknum svæðum á Akureyri og Siglufirði.

Drónabannið gildir frá kl. 12:00 föstudaginn 31. júlí 2026 og stendur til kl. 04:00 mánudaginn 3. ágúst 2026.

Svæðið á Akureyri er hátíðarsvæði fjölskylduhátíðarinnar Ein með öllu við Akureyrarvöll. Svæðið er merkt með grænum ramma á myndinni.

Svæðið á Siglufirði er hátíðarsvæði fjölskylduhátíðarinnar Síldarævintýrið á Siglufirði og er merkt með gulum ramma á myndinni.
Allt drónaflug er bannað á þessum svæðum á þessu tímabili, nema með sérstöku leyfi Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.
Drónabannið er sett á grundvelli d-liðar 3. gr. reglugerðar 1360/2024.
