Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Aukin eftirfylgni með kröfum við lögskráningu á farþegaskip og farþegabáta frá 1. júní 2026

28. maí 2026

Fréttin birtist fyrst 20. apríl 2026. Uppfært 28. maí: Frá og með 1. júní mun birtast ábending í lögskráningarkerfinu ef einstaklingur sem á að lögskrá hefur ekki gilt sjómannalæknisvottorð. Viðkomandi er þá hvattur til að afla sér vottorðs sem fyrst og eigi síðar en 1. september 2026. Frá og með 1. september verður ekki lengur hægt að lögskrá áhafnarmeðlim sem ekki hefur gilt sjómannalæknisvottorð.

Frá og með 1. júní 2026 verður eftirfylgni með eftirfarandi gildandi kröfum við lögskráningu áhafna á farþegaskipum og farþegabátum aukin og framkvæmd þeirra formfest í lögskráningarkerfi sjómanna, Skútunni. Markmiðið er að tryggja samræmingu og styrkja enn frekar öryggi farþega og áhafna.Kröfurnar fela í sér eftirfarandi:

  • Skipstjórnarmenn á farþegaskipum og farþegabátum þurfa að hafa gilt fjarskiptaskírteini til að geta verið lögskráðir. Um er að ræða almennt eða takmarkað fjarskiptaskírteini (GOC eða ROC), eftir farsviði skipsins.

  • Allir sem starfa í áhöfn farþegaskipa og farþegabáta þurfa jafnframt að hafa gilt sjómannalæknisvottorð til að hægt sé að lögskrá.

Skilyrðin þurfa að vera uppfyllt til að hægt sé að ljúka lögskráningu í kerfinu og til þess að viðhalda lögskráningu.

Nánari upplýsingar er að finna í Skútunni, kerfi fyrir skipaskráningar og lögskráningu sjómanna.

Sjá einnig:

STCW atvinnuskírteini sjómanna á farþega- eða flutningaskipum

Heilbrigðiskröfur vegna atvinnuréttinda á sjó